|
HYDRADERMIE.
Hydradermie andlitsmeðferð fyrir allar húðgerðir, gelum jónað niður í neðri lög húðarinnar, húðin verður rakameiri, hreinni, grunnar hrukkur minna áberandi og ljómi húðarinnar eykst. Frábær árangur fyrir feita og óhreina húð.
LÚXUS HYDRADERMIE
gelum jónað niður í húðina, húðin hreinsuð súrefnismettuð og gott nudd og maski í lokin. Tími 2 klst.
HYDRADERMIE LIFT.
Hátæknileg andlitslifting, hreinsar úrgangsefni úr sogæðakerfinu, örvar vöðva þannig að þeir styrkjast og lyftast ( besta andlitsleikfimin). maski i lokin. Tími 1klst.
HYDRADERMIE TIL DJÚPHREINSUNAR.
Losar um fílapensla, hátiðni til að súrefnismetta og sótthreinsa húðina. Tími 1 klst.
AROMATIC nátturuleg meðferð án allra aukaefna.
Yndisleg meðferð sem nærir, róar og mýkir húðina, kraftur ilmolianna hafa áhrif á líkama og sál. Maskinn er sérblandaður úr plöntuúrefnum fyrir hverja húðgerð. gott að taka sem kúr. Tími 1,30 klst.
ÁVAXTASÝRUMEÐFERÐ húðflögnun og ljómi.
Losar og fjarlægir dauðar húðfrumur, endurnýjun húðfruma verður hraðari,gott nudd og hressandi berjamaski í lokin.Tími 1.30 klst.
LIFTOSOME stinnandi meðferð.
Frábær meðferð á þreytta og slappa húð, C vítamín og gingsen meðferð,gott nudd ampúlla og hitamaski. tími 1,30 klst
Ef bara er tekin maskin þá 50 mín.
|
|
|
LÚXUS-ANDLITSBAÐ.
Húðin grunnhreinsuð, djúphreinsuð(kornamaski) gufa, fílapenslahreinsun, ampúlla, nudd á herðar bringu handleggi háls og andlit. Sérvalin maski í lok meðferðar. Tími 2 klst.
ANDLITSBAÐ.
Húðin grunnhreinsuð, kornamaski fílapenslahreinsun gufa nudd á herðar bringu háls andlit og maski. tími 1,30 klst.
NUDD OG MASKI.
Húðin grunnhreinsuð kornamaski nudd á herðar bringu háls andlit og maski. Tími 1 klst.
HÚÐREINSUN.
Húðin grunnhreinsuð kornamaski gufa fílapenslahreinsun maski, Tími 1klst.
|
|
|